Fréttatilkynning til fjölmiðla
Starfsemi Bláa Lónsins opnar á morgun eftir að svæðið var rýmt við upphaf eldgossins sem hófst 29. maí 2024. Lögreglustjóri hefur farið yfir öryggismál með …
Starfsemi Bláa Lónsins opnar á morgun eftir að svæðið var rýmt við upphaf eldgossins sem hófst 29. maí 2024. Lögreglustjóri hefur farið yfir öryggismál með …
Fréttatilkynning til fjölmiðla, send út vegna uppfærslu á hættumati, sjá viðhengi. Annað óbreytt frá þeirri fréttatilkynningu sem lögreglustjóri sendi út fyrr í dag. Dregið hefur …
Dregið hefur verulega úr virkni eldgossins sem hófst 29. maí sl. Hraunrennsli er aðallega á svæðinu í kringum Hagafell. Þá sýndu GPS mælingar að land …
Við viljum nú byrja á því að óska þjóðinni allri til hamingju með nýjan forseta, Höllu Tómasdóttur, sem mun taka við því embætti 1. ágúst nk.
Þá viljum við einnig senda sjómönnum landsins og fjölskyldum þeirra hamingjuóskir með daginn en í dag er sjómannadagurinn haldinn hátíðlegur um land allt.
Svon við snúum okkur að alvörunni þá er ljóst að komandi vika verður ekki sú besta í sumar þar sem von er á hvassri norðaustan átt með mikilli úrkomu og lágu hitastigi inn á landið seinnipartinn á morgun, mánudag, og mun vara allt til föstudags. Veðurfræðingar segja að þetta sé mjög óvenjulegt veðurfar á þessum tíma og þá ekki síst hvað varðar mikla úrkomu á okkar svæði á þessum árstíma.
Veðurstofan hefur í þessu samhengi gefið út gular veðurviðvaranir á Norðurlandi eystra og hvetjum við alla til að fylgjast vel með á þeim vettvangi. Þær munu færast upp í appelsínugular þegar líður á mánudagskvöldið.
Ljóst er að Vegagerðin mun taka til einhverra lokana á þessu tímabíli og því nauðsynlegt að fylgjast vel með á síðu þeirra.
Í texta Veðurstofunnar segir m.a. að ferðalög geta verið varasöm, sér í lagi á ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi. Snjóþekja getur sest á vegi á Norður- og Austurlandi, einkum fjallvegi. Huga þarf að því að koma búfénaði í skjól. Útivistarfólki er bent á að fara yfir áætlanir sínar með tilliti til kulda og vosbúðar sem óveðrinu fylgir.
Þá má vænta þess að einhverjar rafmagnstruflanir geti komið upp á þessu tímabili, þá helst vegna ísingar.
Endilega fylgist vel með og hugið að ykkar umhverfi og búfénaði.
... Sjá meiraSjá minna
vedur.is | Viðvaranir | Veðurstofa Íslands
© Veðurstofa Íslands | Bústaðavegi 7-9 | 105 Reykjavík | Sími 522 6000 | Kennitala 630908-0350 Hafa samband | Starfsfólk | Notkunarskilmálar | Veftré | Spurt og svarað um vefinn | Persónuv...1 CommentComment on Facebook
Verð ég sektuð ef ég hendi nagladekkjum undir bílinn fyrir ferðalag frá Reykjavík til Akureyrar snemma í fyrramálið?
Uppboði á óskilamunun lýkur í dag kl.20 og við nýtum því tækifærið og minnum fólk á að líta þar inn og sjá hvort það finni sér reiðhjól við hæfi þannig að þau öðlist nýtt líf. ... Sjá meiraSjá minna
Þetta efni er ekki í boði sem stendur
Þetta gerist yfirleitt vegna þess að eigandinn deildi innlegginu einungis með takmörkuðum hópi fólks, breytti hver getur séð innleggið eða því hefur verið eytt.0 CommentsComment on Facebook
Veðurstofan hefur gefið út veðurviðvörun er gildir frá og með morgundeginum til föstudags. Í viðvöruninni kemur fram að „ef spár rætast, er um að ræða óveður sem er mjög óvenjulegt á þessum árstíma, bæði hvað varðar vindstyrk og einnig lágt hitastig samfara talsverðri úrkomu. Huga þarf að lausamunum sem geta fokið. Ferðalög geta verið varasöm, sérílagi á ökutækjum sem eru viðkvæm fyrir vindi. Snjóþekja getur sest á vegi á Norður- og Austurlandi, einkum fjallvegi.“
Vegfarendur að þessu sögðu hvattir til að fylgjast vel með veðri og færð. Förum varlega.
... Sjá meiraSjá minna
vedur.is | Viðvaranir | Veðurstofa Íslands
© Veðurstofa Íslands | Bústaðavegi 7-9 | 105 Reykjavík | Sími 522 6000 | Kennitala 630908-0350 Hafa samband | Starfsfólk | Notkunarskilmálar | Veftré | Spurt og svarað um vefinn | Persónuv...1 CommentComment on Facebook
Er ekki bara skynsamlegra að hafa gula viðvörun allt árið.